Var mamma þín vond! Mín var Það !
Við áttum verstu mömmu í heiminum! Þegar aðrir krakkar borðuðu
nammi í morgunmat fengum við hafragraut. Þegar aðrir krakkar fengu
pepsí og súkkulaði fyrir hádegismat fengum við samlokur. Og menn
geta bara rétt ímyndað sér hvað hún gaf okkur í kvöldmat,allskonar
MAT. Mamma vildi alltaf vita hvar við vorum, ALLTAF,það hefði mátt
halda að við værum í fangelsi. Hún vildi vita hverjir voru vinir
okkar og hvað við vorum að gera með þeim. Hún krafðist þess ef við
segðumst ætla að fara eitthvað í klukkutíma þá væri það aldrei
meira en klukkutími. Þegar það var FRÍ í skólanum þurftum við að
vinna. Við að þvo diskana, búa um rúmin, læra að elda ,þvo þvottinn
og annast önnur leiðinleg störf. Við héldum að hún lægi vakandi á
nóttunni bara til að pæla út hvað hún ætti að láta okkur gera
daginn eftir. Hún lét okkur alltaf segja sannleikann, allann
sannleikann og ekkert nema sannleikann.Þegar við vorum unglingar,
gat hún lesið hugsanir okkar. Þá var lífið ERFITT. Þegar allir
fengu að fara á djammið og skemmta sér 12 eða 13 ára, fengum við
ekki að gera neitt fyrr en við vorum 16.ára. Mömmu vegna misstum
við af fjölda mörgu og miklu sem aðrir krakkkar gerðu. Ekkert okkar
hefur verið tekið fyrir að stela úr búðum,eyðileggja fyrir öðru
fólki eða verið tekið fyrir nokkurt afbrot af neinu tagi. ALLT
henni að kenna. Við urðum aldrei full,kunnum ekki að reykja, fengum
ekki að vera úti allar nætur og misstum því af að gera svo
fjölmargt sem unglingar annars fá að gera. Á sunnudögum þurftum við
að fara í kirkju, og misstum aldrei af messu. Núna erum við flutt
að heiman. Guðhrædd, menntuð og gott fólk.Við gerum okkar besta að
vera vondir foreldrar eins og mamma okkar var. Ég held að það sem
er að í heiminum í dag sé að Það er bara ekki nóg af vondum mömmum
lengur.